Skilgreining

Greiðslubyrði er sú mánaðarlega fjárupphæð sem lántaki þarf að greiða af láni sínu, samsett af vöxtum og afborgunSá hluti lánsgreiðslu sem lækkar höfuðstól láns. . Hún er lykilþáttur í greiðslumatiStaðlað mat lánastofnunar á greiðslugetu umsækjanda áður en lán er veitt. og fjármálastöðu heimila og hefur áhrif á hversu mikið rými fólk hefur fyrir önnur útgjöld eða sparnað.
Greiðslubyrði lána breytist oft með vaxtabreytingum, verðbólgu eða breytingum á lánstíma og höfuðstólUpphæð sem eftir stendur af láni áður en vextir eru reiknaðir.. Því er mikilvægt að horfa ekki aðeins á núverandi greiðslu, heldur einnig hvernig hún gæti þróast.

Raundæmi

🏡 Þú ert með húsnæðislán á 8% breytilegum vöxtum og 40 ára lánstíma.
💳 Þú borgar 240.000 kr. á mánuði – það er greiðslubyrðin þín.
📈 Seðlabankinn hækkar vexti og lánveitandi hækkar lánið í 9,5% vexti.
📦 Ný greiðslubyrði: 280.000 kr. á mánuði – þó höfuðstóllinn hafi ekki breyst.
📌Nánar: Vaxtahækkun getur þýtt að mánaðarleg greiðsla af láni hækki um tugþúsundir króna, jafnvel þó ekkert hafi breyst í láninu sjálfu – þetta er hækkun á greiðslubyrði.

Hvaða áhrif hefur þetta á mig?

Greiðslubyrðin hefur bein áhrif á hversu mikið þú átt eftir fyrir neyslu, sparnað eða aðra fjárfestingu. Lán eru misnæm fyrir breyttri greiðslubyrði, en sem dæmi er óverðtryggt lánLán óháð vísitölu og verðlagi. með föstum vöxtum fullkomlega ónæmt fyrir skyndilegri breytingu á greiðslubyrði (a.m.k. út fastvaxta tímabilið). Á hinn bóginn þá er verðtryggt lánLán sem bundið er við breytingu á Vísitölu neysluverðs. með breytilegum vöxtum ansi næmt fyrir breytingum.
Hækki greiðslubyrði skyndilega, getur það valdið fjárhagsálagi, sérstaklega ef þú ert með mörg lán svo það er gott að vera meðvitaður um mögulegar breytingar á vöxtum eða verðlagi ef lánið þitt er næmt fyrir breytingum. Fari greiðslubyrði of hátt í hlutfall við ráðstöfunartekjurSú fjárhæð sem eftir stendur af tekjum þegar búið er að greiða skatta og opinber gjöld. fólks gæti fólk neyðst til þess að breyta um lánaform eða jafnvel frysta lánið.
💡Athugaðu: Sé reiknuð greiðslubyrði í greiðslumati hærri en 35% af ráðstöfunartekjum (40% fyri fyrstu kaupendur) færð þú ekki samþykkt lán, skv. reglum Seðlabankans.

Tegundir

  • Föst greiðslubyrði: Sama greiðsla á hverju tímabili (t.d. óverðtryggt jafngreiðslulán á föstum vöxtum).
  • Breytileg greiðslubyrði: Greiðslan breytist með vaxtastigi, verðlagi eða höfuðstól (t.d. verðtryggt jafngreiðslulán á breytilegum vöxtum).
  • Stigvaxandi greiðslubyrði: Byrjar lág en hækkar yfir tíma (t.d. verðtryggð lán).