Skilgreining

Afborgun er fjárhæð sem greiðist inn á höfuðstólUpphæð sem eftir stendur af láni áður en vextir eru reiknaðir. láns samkvæmt greiðsluáætlun eða samkomulagi við lánveitanda.
💡 Athugaðu: Í sumum tilfellum fara lánveitendur fram á uppgreiðslugjald þegar greitt er inn á höfuðstól.
Afborganir eru aðgreindar frá vaxtagreiðslum og en saman mynda þessir tveir þættir heildarlánsgreiðslu. Grunnjafnan er:
Lánsgreiðsla = Afborgun + Vextir
Sé lánið verðtryggtlán sem bundið er við breytingu á Vísitölu neysluverðs. bætast verðbætur við höfuðstól í hverjum mánuði (eða dragast frá). Hlutfall afborgunar og vaxta í hverri greiðslu breytist yfir lánstímann. Þegar um húsnæðislán er að ræða fer í flestum tilfellum stærstur hluti lánsgreiðslu í vexti í upphafi, en síðar fer stærri hluti í afborganir þar sem höfuðstóll lækkar.

Raundæmi

Jón tekur húsnæðislán upp á 40.000.000 kr. með 3,5% vöxtum til 30 ára. Mánaðargreiðslan er 179.000 kr. Í fyrstu greiðslunni fara 116.667 kr. í vexti og 62.333 kr. í að lækka höfuðstólinn (afborganir).
📌 Nánar: Í upphafi lánsins er stærri hluti mánaðargreiðslunnar vextir, en með tímanum hækkar hlutfallið sem fer í afborganir. Þetta er vegna þess að vextir reiknast alltaf af eftirstandandi höfuðstól.
  • 🏠 Höfuðstóll eftir 1. greiðslu: 39.937.667 kr.
  • 📈 Vextir í 1. greiðslu: 116.667 kr.
  • 💳 Afborgun í 1. greiðslu: 62.333 kr.
Formúla: Afborgun + Vextir = Lánsgreiðsla
62.333 + 116.667 = 179.000
Eftir því sem árin líða, lækkar vaxtahluturinn og afborgunarhluturinn hækkar. Þannig hraðast á lækkun höfuðstóls því lengra sem líður á.
*Tölur í dæminu eru eingöngu til viðmiðunar og eru skáldaðar til að útskýra hugtakið.

Hvaða áhrif hefur þetta á mig?

Afborgunin er hluti greiðslunnar sem raunverulega lækkar skuldir þínar. Ef aðeins eru greiddir vextir helst höfuðstóll óbreyttur (og getur hækkað í verðtryggðum lánum). Með því að greiða aukalega inn á höfuðstól lækkar framtíðarkostnaður í vöxtum og lánstími styttist.

Tegundir

  • Jafnar afborganir – Sama krónutala inn á höfuðstól í hverjum mánuði.
  • Jafnar greiðslur – Lánsgreiðsla er alltaf sú sama, en hlutfall afborgunar og vaxta breytist með tímanum.
  • Aukaafborganir – Viðbótargreiðslur sem greitt er inn á lán utan greiðsluáætlunnar. Þessi aðferð lækkar höfuðstólinn hraðar.