Skilgreining

Debetkort er greiðslukort sem tengist beint við bankareikning notandans. Við greiðslu með debetkorti fer sú fjárhæð sem greiða á, beint af reikningnum. Ólíkt kreditkortumGreiðslukort sem veitir tímabundið lán – þú borgar síðar., sem fela í sér tímabundna lánveitingu og greiðslu síðar, notar debetkort eingöngu þá fjármuni sem þegar eru til staðar á reikningi viðkomandi.
Einhverjir myndu segja að debetkort hvetji til ábyrgari neysluhegðunar þar sem þú eyðir aðeins þeim peningum sem þú átt inn á banka. Það fer þó eftir einstaklingum, en þú getur sótt um yfirdráttHeimild til að fara tímabundið í mínus á bankareikningi. á bankareikning og því er mögulegt að eyða umfram efni með debetkorti. Það gerist þó ekki nema að þú sækir sérstaklega um það.

Raundæmi

Íris fer í búð og kaupir mat fyrir 5.000 kr. Hún á 10.000 kr. inni á bankareikning og borgar með debetkortinu sínu. Um leið og greiðslan fer í gegn, lækkar innistæða á bankareikningnum hennar niður í 5.000 kr. Íris greiðir því kostnaðinn strax út af reikning hjá sér.

Hvaða áhrif hefur þetta á mig?

Ef þú notar debetkort þá hefur þú fullkomna yfirsýn yfir útgjöldin þín í rauntíma, því þú eyðir aðeins því sem þú átt. Þú forðast óvæntar upphæðir í lok mánaðar eins og oft vill gerast þegar fólk notar kreditkort.

Tegundir

Debetkort eru gefin út af mörgum fjármálafyrirtækjum og eru til í allskonar útfærslum, en eiga það þó öll sameiginlegt að draga pening út af bankareikningi um leið og færsla fer í gegn. Í dag eru flestir farnir að nota debetkort rafrænt í gegnum síma.