Skilgreining
Kreditkort eru greiðslukort sem veita handhafa þeirra aðgang að skammtímaláni frá útgefanda, sem notað er til kaupa á vöru og þjónustu eða úttektar á reiðufé. Greiðslur með kreditkorti dragast ekki af bankareikningi jafn óðum eins og í tilfelli
debetkortaGreiðslukort sem tengist beint við bankareikning og dregur fjárhæð strax út við kaup. heldur safnast upp sem skuld við útgefandann sem yfirleitt er banki eða sérstakt greiðslukortafyrirtæki.
Handhafi fær mánaðarlegt yfirlit yfir útgjöld og getur annaðhvort greitt heildarfjárhæðina eða hluta fjárhæðarinnar. Ef greiðslu seinkar eða er ekki að fullu innt af hendi, reiknast vextir og önnur gjöld. Kreditkort eru víða viðurkennd og bjóða oft upp á aukin réttindi eins og ferðatryggingar og vildarkerfi en bera þó árgjald. Því hærra sem árgjaldið er, því betri fríðindi (oftast).
Kreditkort er öflugt tól þegar það er notað rétt. Þ.e. að þú getur nýtt tímann, frá því þú færð vöru í hendurnar þar til þú greiðir fyrir hana, til að ávaxta peninginn t.d. inn á vaxtareikning. Hins vegar er líka hætta á því að missa yfirsýn ef ekki er fylgst vel með útgjöldum. Það getur leitt til þess að þú þurfir að dreifa reikningnum og þ.a.l. að borga vexti af nýrri skuld.
Raundæmi
Jón fer í raftækjaverslun í byrjun mánaðar og kaupir sjónvarp á 180.000 kr. með kreditkortinu sínu. Hann borgar fyrir sjónvarpið í verslun, en leggur ekki út fyrir því fyrr en í lok mánaðar þegar kemur að því að greiða kreditkortareikniginn. Ef hann borgar reikninginn fyrir eindaga, greiðir hann aðeins 180.000 kr. Ef hann bíður eða borgar aðeins hluta, bætast vextir og kostnaður við.
Hvaða áhrif hefur þetta á mig?
Kreditkort veita þér ákveðinn sveigjanleika. Þú getur nýtt það sem vaxtalaust skammtímalán, auk fríðinda eins og trygginga og vildarpunkta. Þessum sveigjanleika fylgir þó ábyrgð. Ef þú gleymir þér og eyðir umfram það sem þú þénar, safnast skuldin upp með vöxtum og kostnaði. Þess vegna er mikilvægt að fylgjast náið með útgjöldum og greiða alltaf á réttum tíma. Kreditkort er nytsamlegt tól, en getur orðið dýrt ef þú missir stjórn á neyslunni þinni!
Tegundir
Til eru óteljandi tegundir kreditkorta með mismunandi fríðindum, sem nálgast má á vefsíðum kortaútgefenda á Íslandi. Þó má skipta kreditkortum í tvo yfirflokka: Almennt kreditkort sem er hið hefðbundna kreditkort sem lýst er hér að ofan og svo fyrirframgreitt kreditkort sem er í eðli sínu (nánast) það sama og debetkort.