Tollar

Gjöld sem leggjast ofan á vörur við inn- eða útfluttning

Hér getur þú valið stigið sem hentar þér best

1. Skilgreining

Tollar er gjald sem þarf að greiða þegar vara fer yfir landamæri, oftast þegar hún er flutt inn í landið. gjaldi er þá bætt við vöruna sem gerir hana dýrari fyrir innflutningsaðila og að endingu dýrari fyrir viðskiptavini. Ríki nota tolla til að fá tekjur en einnig til að vernda innlendar vörur og fyrirtæki gegn erlendum samkeppnisaðilum. Ef engir tollar væru, væri sumt ódýrara en innlendir framleiðendur ættu þó erfiðara með að keppa við þau fyrirtæki sem flytja inn vörur.

2. Raundæmi

Katrínu hefur lengi langað að prófa nýja Tik-Tok súkkulaðið, en það er hvergi fáanlegt á Íslandi. Hún bregður því á það ráð að panta súkkulaðið sjálf á netinu. Hún ákveður að kaupa súkkulaði fyrir 18.000 kr. en bregður í brún að sjá miklu hærri tölu á skjánum þegar komið er að því að borga
Nánar:
Katrín pantar nokkra pakka af súkkulaði erlendis frá:
• Súkkulaðið kostar: 18.000 kr.
• Sendingarkostnaður: 3.000 kr.
Samtals: 21.000 kr.
Þegar sendingin kemur til Íslands fer hún í gegnum tollafgreiðslu. Gert er ráð fyrir:
• Tollur: 10% af 21.000 kr. = 2.100 kr
• VSK-grunnur: 21.000 + 2.100 = 23.100 kr.
• Virðisaukaskattur: 11% af 23.100 kr. = 2.541 kr.
Samtals aukaleg gjöld:
• Tollur: 2.100 kr.
• VSK: 2.541 kr.
Heildargreiðsla við móttöku: 4.641 kr
Heildarkostnaður súkkulaðis með gjöldum: 25.641 kr
Athugaðu: Tollar eru misháir eftir flokkum. T.d. eru bækur tollfrjálsar í innflutningi.

3. Hvaða áhrif hefur þetta á mig?

Tollar hafa áhrif á verð þeirra vara sem þú pantar frá útlöndum – þú borgar oft meira en upphaflega verð vörunnar. Þeir hafa líka áhrif á vöruúrval og verðlag í landinu almennt, sérstaklega ef mikið er flutt inn. Fyrirtæki sem flytja inn vörur þurfa að reikna með þessum kostnaði í verðlagningu.

4. Tegundir

Innflutningstollar: Lagðir á vörur sem fluttar eru inn til lands.
Útflutningstollar: Lagðir á vörur sem fluttar eru út úr landi.
Verndartollar: Notaðir til að verja innlenda framleiðslu.
Einföld útskýring væntanleg

Höfundur

Arnar Þór Ólafsson

Arnar Þór Ólafsson er stofnandi Auratals og er menntaður fjármálaverkfræðingur. Meðal verkefna sem hann hefur komið að er hlaðvarpið Pyngjan og sjónvarpsþátturinn Viltu finna milljón sem sýndur var á Stöð2.

Deildu færslunni

Facebook
LinkedIn

Hér getur þú valið stigið sem hentar þér best

1. Skilgreining

Tollar er gjald sem þarf að greiða þegar vara fer yfir landamæri, oftast þegar hún er flutt inn í landið. gjaldi er þá bætt við vöruna sem gerir hana dýrari fyrir innflutningsaðila og að endingu dýrari fyrir viðskiptavini. Ríki nota tolla til að fá tekjur en einnig til að vernda innlendar vörur og fyrirtæki gegn erlendum samkeppnisaðilum. Ef engir tollar væru, væri sumt ódýrara en innlendir framleiðendur ættu þó erfiðara með að keppa við þau fyrirtæki sem flytja inn vörur.

2. Raundæmi

Katrínu hefur lengi langað að prófa nýja Tik-Tok súkkulaðið, en það er hvergi fáanlegt á Íslandi. Hún bregður því á það ráð að panta súkkulaðið sjálf á netinu. Hún ákveður að kaupa súkkulaði fyrir 18.000 kr. en bregður í brún að sjá miklu hærri tölu á skjánum þegar komið er að því að borga
Nánar:
Katrín pantar nokkra pakka af súkkulaði erlendis frá:
• Súkkulaðið kostar: 18.000 kr.
• Sendingarkostnaður: 3.000 kr.
Samtals: 21.000 kr.
Þegar sendingin kemur til Íslands fer hún í gegnum tollafgreiðslu. Gert er ráð fyrir:
• Tollur: 10% af 21.000 kr. = 2.100 kr
• VSK-grunnur: 21.000 + 2.100 = 23.100 kr.
• Virðisaukaskattur: 11% af 23.100 kr. = 2.541 kr.
Samtals aukaleg gjöld:
• Tollur: 2.100 kr.
• VSK: 2.541 kr.
Heildargreiðsla við móttöku: 4.641 kr
Heildarkostnaður súkkulaðis með gjöldum: 25.641 kr
Athugaðu: Tollar eru misháir eftir flokkum. T.d. eru bækur tollfrjálsar í innflutningi.

3. Hvaða áhrif hefur þetta á mig?

Tollar hafa áhrif á verð þeirra vara sem þú pantar frá útlöndum – þú borgar oft meira en upphaflega verð vörunnar. Þeir hafa líka áhrif á vöruúrval og verðlag í landinu almennt, sérstaklega ef mikið er flutt inn. Fyrirtæki sem flytja inn vörur þurfa að reikna með þessum kostnaði í verðlagningu.

4. Tegundir

Innflutningstollar: Lagðir á vörur sem fluttar eru inn til lands.
Útflutningstollar: Lagðir á vörur sem fluttar eru út úr landi.
Verndartollar: Notaðir til að verja innlenda framleiðslu.
Einföld útskýring væntanleg

Einfaldar og gagnlegar upplýsingar á mannamáli

Fáðu passlega reglulegar fréttir um stöðu fjármála, hugtök og meira skemmtilegt