Verðtryggt lán

Lán sem hækkar með verðbólgu

Hér getur þú valið stigið sem hentar þér best

1. Skilgreining

Verðtryggt lán er lán sem tengt er verðlagi með vísitölubindingu. Höfuðstóll lánsins er uppfærður mánaðarlega í samræmi við breytingar á vísitölu neysluverðs, sem gerir lánveitanda kleift að verja sig gegn verðbólgu. Lántakandinn greiðir af vöxtum sem eru lægri en á óverðtryggðum lánum, en skuldbindur sig í staðinn til að taka á sig verðbólguáhættu.

2. Raundæmi

🏠 Elín og Kári kaupa íbúð og taka verðtryggt lán.
📉 Greiðslubyrðin er lág í byrjun, sem hentar þeim vel þar sem þau eru að koma ný inn á markaðinn.
📈 Eftir tvö ár fer verðbólga að hækka og með henni hækkar skuldfjárhæðin sem þau eiga eftir að greiða.
🔄 Þrátt fyrir að þau séu búin að borga af láninu reglulega, er höfuðstóllinn á láninu hærri en í upphafi vegna verðtryggingarinnar.

3. Hvaða áhrif hefur þetta á mig?

Verðtryggð lán geta virst hagstæð í byrjun með lægri greiðslubyrði. Hins vegar er nánast öruggt að höfuðstóll lánsins hækki stöðugt lengst framan af, nema þú greiðir reglulega inn á höfuðstólinn. Gott er að fylgjast grannt með þróun á vísitölu neysluverðs til að vita hvernig lánið þróast með tímanum.

4. Tegundir

Athugið: Sama greiðsluform er hægt að nota bæði með verðtryggðum og óverðtryggðum lánum. Munurinn er sá að verðtryggð lán fylgja vísitölu neysluverðs sem þýðir að höfuðstóll og greiðslur breytast með verðbólgu. Svo þegar talað er um að eitthvað í eftirfarandi texta lækki þá er átt við að raunvirði. Nafnvirði (krónutalan) verðtryggðra lána hækka iðullega framan af.

Með jöfnum afborgunum: Afborgun af höfuðstól er alltaf sú sama (að raunvirði). Heildargreiðsla (afborgun + vextir) lækkar smám saman (að raunvirði) þar sem höfuðstóll lækkar stöðugt (að raunvirði). Greiðslubyrði af þessari tegund er þó hærri í upphafi heldur en með jöfnum greiðslum.
Með jöfnum greiðslum: Heildargreiðsla (afborgun + vextir) á mánuði er alltaf sú sama (að raunvirði). Vaxtahluti lánsins er þó mun hærri en afborgunarhlutinn í upphafi svo hér lækkar höfuðstóll lánsins (að raunvirði) hægt í byrjun en greiðslubyrðin er talsvert léttari heldur en af láni með jöfnum afborgunum.

1. Skilgreining

Verðtryggt lán er lán sem fylgir verðlagi í landinu. Þegar verðbólga hækkar, hækkar upphæðin sem þú skuldar (Höfuðstóll). Þetta er gert með því að tengja lánið við vísitölu neysluverðs, sem mælir hækkun á almennu verðlagi í landinu. Verðtryggð lán býður þó upp á lægri mánaðarlegar greiðslur í byrjun lánstíma miðað við óverðtryggt lán og er því aðlaðandi kostur, en höfuðstóllinn getur þó hækkað hratt ef verðbólga helst há.

Dæmi: Eftir eitt ár af lánstímanum stendur verðbólga í 10%. Það þýðir (gefið að afborganir hafi verið hverfandi) að höfuðstóll láns sem upphaflega stóð í 40 m.kr. er nú orðinn 44 m.kr.

Athugið: Sama greiðsluform er hægt að nota bæði með verðtryggðum og óverðtryggðum lánum. Munurinn er sá að verðtryggð lán fylgja vísitölu neysluverðs sem þýðir að höfuðstóll og greiðslur breytast með verðbólgu. Svo þegar talað um er að eitthvað í eftirfarandi texta lækki þá er átt við að raunvirði. Að nafnvirði (krónutalan) hækka verðtryggð lán iðullega framan af.

Höfundur

Arnar Þór Ólafsson

Arnar Þór Ólafsson er stofnandi Auratals og er menntaður fjármálaverkfræðingur. Meðal verkefna sem hann hefur komið að er hlaðvarpið Pyngjan og sjónvarpsþátturinn Viltu finna milljón sem sýndur var á Stöð2.

Deildu færslunni

Facebook
LinkedIn

Einfaldar og gagnlegar upplýsingar á mannamáli

Fáðu passlega reglulegar fréttir um stöðu fjármála, hugtök og meira skemmtilegt