Skilgreining
Rekstrarreikningur er sá hluti ársreikningsYfirlit yfir fjárhag fyrirtækis yfir heilt rekstrarár sem gefur upplýsingar um tekjur, gjöld og afkomu fyrirtækis. Hann nær yfir árstímabil, og er megintilgangur hans að sjá hvort starfsemi fyrirtækisins hafi skilað hagnaði eða tapi. Rekstrarreikningur er yfirleitt settur upp þannig að rekstrartekjur eru birtar fyrst, síðan er dreginn frá kostnaður, fjármagnsgjöld og að lokum skattar. Niðurstaðan er hreinn hagnaður eða tap. Rekstrarreikningur spilar lykilhlutverk fyrir eigendur, stjórnendur og fjárfesta til að meta árangur rekstursins. Dæmi um algengar stærðir og hlutföll sem hægt er að draga út úr rekstrareikning eru Framlegð, álagning, EBITDA og EBIT.Raundæmi
Hægt er að hugsa rekstrarreikning eins og fjármálayfirlit yfir árið, líkt og ef þú myndir fylgjast með eigin heimilisrekstri. Þú skráir allar tekjur sem koma inn á árinu, dregur frá öll útgjöld, og sérð þannig hversu mikið þú átt eftir þegar árið er liðið. Fyrirtæki gera þetta á sama hátt, nema með skipulagðara formi. Einfalt dæmi gæti litið svona út:
Í rekstrarreikningi Kaffihússins ehf. fyrir árið 2024 kom eftirfarandi fram:
Rekstrartekjur:
Sala á kaffi og kökum – 20.000.000 kr.
Rekstrartekjur samtals: 20.000.000 kr. Rekstrargjöld:
Vörukaup – 6.000.000 kr.
Laun og launatengd gjöld – 8.000.000 kr.
Húsnæðiskostnaður – 2.000.000 kr.
Annar rekstrarkostnaður – 1.000.000 kr.
Rekstrargjöld samtals: 17.000.000 kr. Nettó fjármagnsgjöld:
500.000 kr. Hagnaður fyrir skatta:
2.500.000 kr. Tekjuskattur (20%):
500.000 kr. Hagnaður eftir skatta:
2.000.000 kr.
Sala á kaffi og kökum – 20.000.000 kr.
Rekstrartekjur samtals: 20.000.000 kr. Rekstrargjöld:
Vörukaup – 6.000.000 kr.
Laun og launatengd gjöld – 8.000.000 kr.
Húsnæðiskostnaður – 2.000.000 kr.
Annar rekstrarkostnaður – 1.000.000 kr.
Rekstrargjöld samtals: 17.000.000 kr. Nettó fjármagnsgjöld:
500.000 kr. Hagnaður fyrir skatta:
2.500.000 kr. Tekjuskattur (20%):
500.000 kr. Hagnaður eftir skatta:
2.000.000 kr.