Skilgreining
Efnahagsreikningur er hluti ársreikningsYfirlit yfir fjárhag fyrirtækis yfir heilt rekstrarár sem sýnir hvað fyrirtæki á (eignir) og hvað það skuldar (skuldir) á loka degi rekstrarárs, oftast 31.desember. Hann sýnir líka eigið fé, sem er mismunur á eignum og skuldum.
📌 Nánar:
Efnahagsreikningur byggir á bókhaldsjöfnunni viðfrægu:
Eignir = Skuldir + Eigið fé.
Og eigið fé því:
Eigið fé = Eignir – Skuldir.
Ef eignir eru hærri en skuldir, er eiginfjárstaðan jákvæð en ef skuldir eru hærri en eignir, þá er eignfjárstaðan neikvæð.
Raundæmi
Til einföldunar er hægt að yfirfæra hugmynd um efnahagsreikning fyrirtækis yfir á þín eigin íbúðakaup. Þú kaupir íbúð á 50 milljónir, en leggur út 10 milljónir í upphafi og færð lán fyrir 40 milljónum. Eignin þín er því 50 m.kr. virði, Skuldin er 40 m.kr. og mismunirinn, 10 m.kr. sem þú lagðir út í upphafi, er eigið fé. Sami þankagangur á sér stað á bakvið efnahagsreikning. Þú fjárfestir pening fyrirtækis í eign en færð kannski hluta af kaupunum að láni til að geta fjármagnað kaupin. Einfalt dæmi gæti litið svona út:
Í lok árs 2024 sýndi efnahagsreikningur Kaffihússins ehf. eftirfarandi stöðu:
Eignir:
Handbært fé – 5.000.000 kr.
Vörubirgðir – 2.500.000 kr.
Húsnæði – 35.000.000 kr.
Eignir samtals: 42.500.000 kr. Skuldir:
Skammtímaskuldir – 4.000.000 kr.
Langtímaskuldir – 18.500.000 kr.
Skuldir samtals: 22.500.000 kr. Eigið fé:
20.000.000 kr.
Fyrirtækið á því eignir sem metnar eru á 20 m.kr. umfram skuldir þess og því í jákvæðri eiginfjárstöðu. Sambærilegt dæmi fyrir einstakling væri ef íbúð þín væri verðmetin á 42,5 m.kr. en þú skuldaðir 22,5 m.kr. Þá ættir þú 20 m.kr. í eigið fé.
Handbært fé – 5.000.000 kr.
Vörubirgðir – 2.500.000 kr.
Húsnæði – 35.000.000 kr.
Eignir samtals: 42.500.000 kr. Skuldir:
Skammtímaskuldir – 4.000.000 kr.
Langtímaskuldir – 18.500.000 kr.
Skuldir samtals: 22.500.000 kr. Eigið fé:
20.000.000 kr.
💡 Athugaðu:
Efnahagsreikningur er alltaf dagsettur og sýnir stöðu á eignum og skuldum á lokadegi rekstrartímabils. Hann sýnir því ekki breytingar innan ársins.